UM OKKUR
UM OKKUR
Gljásteinn er fjölskyldurekið fyrirtæki í ferðaþjónustu. Að Gljásteini standa hjónin Vilborg Guðmundsdóttir og Loftur Jónasson og afkomendur. Loftur er fæddur á staðnum, einn af 16 systkynum en Vilborg var send hingað í sveit og má segja að hún hafi ekki snúið aftur síðan. Tveir synir þeirra, Gústaf og Ólafur Bjarni ásamt tengdadótturinni Jónínu Lóu og öllum barnabörnunum vinna á staðnum, milli annarra verkefna.
Gljásteinn leggur áherslu á sanna íslenska stemmningu, persónulega þjónustu og sérlega góða aðstöðu í frábæru umhverfi, á sanngjörnu verði.
Gljásteinn býður upp á gistingu í Skálanum Myrkholti sem er staðsettur mitt á milli Gullfoss og Geysis.
Verið velkomin.