Skálinn í Fremstaveri er notalegt hús sunnan undir Bláfelli. Fremstavershúsið rúmar 25 manns til gistingar. Þar er góð aðstaða til matseldar og vatnssalerni.
Aðstaða fyrir hross er hestagerði og heysala.
Í Fremstaveri er veðursælt og gott að vera. Allt umhverfi Bláfells er kjörið til útivistar og náttúruskoðunar. Suð-vestanvert við Bláfell eru Hellrar og Kór áhugaverðir staðir og austan við Bláfell rennur Hvítá í gljúfrum og bugum sem gaman er að skoða. Að ganga á Bláfell í björtu veðri er einstök upplifun, því af fjallinu er útsýni vítt um land.
Um aldamótin 1000 bjó Bergþór risi í Bláfelli. Hann skildi eftir sig auðæfi í helli sínum. Sjóður Berþórs er ófundinn þó margir vildu finna. Líklega finnst hellir Berþórs þó aðeins, sé hans leitað með réttu hugarfari. Ef til vill hefur einhver nú á dögum öðlast þá auðmýkt og lífvisku sem þarf til að finna fjársjóðinn í Bláfelli, sem hefur verið týndur í þúsund ár.